MADAME TOURETTE

Dagsetning
Húsið opnar
18:00
Miðaverð
5500 kr
Miðasala
Kaupa miða

MADAME TOURETTE er uppistandseinleikur Elvu Daggar Hafberg Gunnarsdóttur, þar sem hún fjallar á óvæginn og meinfyndinn hátt um fötlun sina og kjör öryrkja á Íslandi.

Elva Dögg hefur starfad sem uppistandari i rúman áratug og jafnan vakið athygli fyrir einstakan húmor sinn og dirfsku við að opinbera þau áhrif sem alvarleg Tourette röskun hefur á lif hennar, jafnt einkalif, félagslif, kynlif og afkomu. Hún veitir áhorfendum sínum innsýn í heim sem margir vilja sidur vita af, en af hispursleysi og glettni sýnir hún okkur á eftirminnilegan hátt hvernig kímni hennar og einstök sýn á heiminn hefur bjargað lífi hennar.

MADAME TOURETTE hóf göngu sína á Listahátíð Reykjavíkur, en hefur síðan verið sýnd Í Tjarnarbíói og í Þjóðleikhúskjallaranum við miikla hrifningu og vinsældir. Kvöld med Elvu Dögg er öllum ógleymanlegt, bæði upplýsandi og um leid óborganlega skemmtilegt.

,,Elva Dögg ber sig eins og stjarna á sviðinu og áhorfendur myndu éta úr lófa hennar, ef það væri ekki óráðlegt að vera mikið að borða, svo títt, stjórnlaust og stundum óvænt sem hlátursköstin bresta á. Stundum sláandi bersögul, stundum ótrúlega kaldhæðin. Ekki alltaf prenthæf. Alltaf morðfyndin. Madame Tourette er sýning engu lík, sem öll ættu að sjá." - Þorgeir Tryggvason, Mbl.

Myndir frá viðburði

Veislusalur

Dalía býðst til leigu fyrir viðburði. Húsnæði Dalíu hentar prýðilega fyrir viðburði af ýmsum gerðum. Vinsamlegast hafið samband til að ræða möguleikana.