Nú höfum við formlega opnað nýja heimasíðu okkar dalia.is og bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á síðuna.
Hér á síðuni munum við tilkynna um hin ýmsu tilboð sem við bjóðum upp á auk frétta af okkur.
Þó að innihald síðunnar sé ekki mikið eins og er, þá eru stórir hlutir á dagskránni hjá okkur og síðan á eftir að vaxa og dafna. Við hvetjum ykkur því að fylgjast áfram með okkur og vonum að ykkur eigi eftir að líka vel.
Við viljum líka minna á að í dag, 8. maí, er mæðradagurinn og því tilvalið að kíkja í heimsókn til okkar og versla hjá okkur blóm á frábæru verði til að gleðja mæður ykkar með.
Í tilefni mæðradagsins opnum við fyrr og er því búðin opin frá 9:00 til 18:00.